Íbúðir með 3 svefnherbergjum í Santa Rosalía Lake & Life Resort

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

frá 48,782,500 kr
frá 325.000€

3

2

106.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5373213

Nýr íbúðakjarni í hinu flotta Santa Rosalía Lake & Life Resort. Aðdráttarafl staðarins er ótrúlegt manngert vatnið með kristaltæru vatni, sem er umkringt hvítum sandströndum. Þessi einstaki staður býður einnig upp á margs konar þjónustu og afþreyingu, eins og vatnaíþróttir í boði við hið glæsilega vatn, strandbar, stór garðsvæði til að slaka á eða fyrir jóga, minigolfvelli, göngu-/hlaupastíga og margt fleira. Staðurinn er algjörlega lokaður, með öryggisverði við inngang og 24 tíma öryggiseftirlit allt um kring. Fyrir utan staðinn er fjöldi golfvalla ásamt hinu fallegu Mar Menor ströndunum, sem eru í aðeins 4 km fjarlægð.

Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir í mismunandi gerðum: jarðhæðir með 2 svefnherbergjum og einkagarði; miðhæðir með 2 eða 3 svefnherbergjum; og rúmgóðar þakíbúðir með 3 svefnherbergjum og stórum veröndum. Allar týpur eru með sakma skipulag;  opin setustofa, borðstofa og eldhús, með stórum gluggum í setustofunni sem opnast út á aðalveröndina. Minni verönd er út af eldhúsi með þvottaaðstöðu. Hjónaherbergin eru með sér baðherbergi.

Íbúðirnar eru með foruppsetningu fyrir loftræstikerfi, eldhúsið er fullbúið með tækjum, geymsla og bílastæði í bílakjallara.

Til viðbótar við alla aðstöðuna sem er í boði á Santa Rosalía er einnig sameiginleg sundlaug og garðsvæði sem íbúar þessa kjarna njóta eingöngu.

See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
  • sameiginleg bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 24 km
  • 22 km
  • 17 km
  • 4 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.