Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
REF 3955961
Einbýlishús, aðeins 750m frá ströndinni í Santiago de la Ribera. Vel rótgróið svæði við Costa Cálida, með alla þjónustu í nágrenninu og mjög vel tengt vegakerfi með AP-7 og N-332. Santiago de la Ribera er bær sem hefur aðdráttarafl og getur boðið upp á áhugaverða afþreyingu fyrir næstum hvern sem er, allt frá áhugamönnum um vatnaíþróttir og náttúruunnendum til þeirra sem einfaldlega hafa gaman af góðri Miðjarðarhafsmatargerð.
Þessi tveggja hæða einbýlishús eru byggð á 220 og 224m2 lóðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum ásamt þakverönd. Á neðri hæð er stór opin stofa og fullbúið eldhús með eldhústækjum og stórum glerhurðum sem liggja út í garð og að sundlaugarsvæði. Á sömu hæð er hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús og lokaður bílskúr. Á efru hæð eru 2 svefnherbergi, bæði með sér fataherbergi og baðherbergi og útgengi út á stóra verönd.
Húsunum fylgja margir aukahlutir eins og loftkæling, eldhústæki, lokaður bílskúr með rafmagnshurð, sumareldhús við hlið sundlaugarsvæðisins, gólfhiti á baðherbergjum, LED lýsing inni og úti, garður með gervigrasi og einkasundlaug með foruppsetningu fyrir varmadælu.Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum