Einbýlishús á einni hæð með þakverönd og sundlaug í La Serena Golf, Los Alcazares

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

frá 67,529,990 kr
frá 449.900€

3

2

132.00 m2

250.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5108825

Nýr kjarni nútímalegra húsa í La Serena Golf resort, sem er í um 1,5km fjarlægð frá ströndinni í Los Alcazares. Svæðið er með 18 holu golfvelli auk klúbbhúss með pro-búð, veitingastað og bar með verönd með útsýni yfir golfvöllinn sjálfan og yfir til Mar Menor. Bærinn Los Alcazares er nærri og býr upp á alla daglega þjónustu, s.s. matvöruverslanir, búðir, veitingastaði, banka og apótek, skóla og heilsugæslu. Svæðið er þekkt fyrir fjölda golfvalla en þar eru einnig ýmis tækifæri til að stunda útivist, s.s. göngur, fjallahjólamennsku, vatnasport eins og siglingar og köfun. Flugvöllurinn í Murcia er í um 30 mínútna akstursfjarlægð og flugvöllurinn í Alicante er í um klukkustundarfjarlægð, þökk sé AP7 hraðbrautinni.

Kjarninn býður upp á einbýlishús á einni hæð sem eru byggð á lóðum sem eru 250-507m2 og eru fáanleg í mismunandi útgáfum; með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og þakverönd, og með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og með eða án þakverandar. Öll húsin eru með opið skipulag með stórum glerhurðum sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæðið. Hjónaherbergin eru með sér baðherbergi og opnast út á verönd. Útisvæðið er kjörið til að njóta Miðjarðarhafslífstílsins í meira en 320 sólardaga á ári.

Húsin verða byggð úr úrvals byggingarefnum og þeim mun fylgja loftkæling, fullbúin eldhús, rafknúnar gardínur í herbergjum, fullbúin baðherbergi með handklæðaofni, LED inni- og útilýsing, sundlaug með tengi fyrir hitagjafa og bílastæði.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 26 km
  • 21 km
  • 39 km
  • 1 km
  • 28 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.