Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 3074548
Nútímaleg hús með einkasundlaug, en útisvæði við húsin miða að því að hver hafi næði við sitt hús. Húsin eru byggð á tveimur hæðum og þau hafa 3 svefnherbergi, eitt þeirra er á jarðhæð, og 3 baðherbergi. Alrýmið er opið og sameinar eldhús, borðstofu og stofu; stórt rými sem opnast út á verönd og sundlaugina. Bílastæði er á lóð. Kjarninn er staðsettur í aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð frá bænum San Pedro del Pinatar, 5 mínútur frá íþróttamiðstöðinni og aðeins 15 mínútna göngufjarlægð er að ströndum bæjarins. Mögulegt er að bæta við þakverönd gegn aukakostnaði.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum