Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
REF 2402684
Staðsett á vinsælu svæði við norður Costa Blanca, umkringt náttúru en þó nálægt öllum daglegum þægindum í bæjunum La Nucia, Polop og Altea. Skammt frá vinsælum ströndum Benidorm, þar sem líka má finna fjöldann allan af veitingastöðum og tómstundum, en einungis 15 mínútur tekur að aka til borgarinnar. Húsin eru byggð á hæð, og möguleiki á að njóta útsýnis yfir Miðjarðarhafið og fjöllin umhverfis.
Nýr kjarni einbýlishúsa með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Húsin eru byggð á lóðum milli 430m2-468m2 að stærð. Aðal hæð húsanna samanstendur af opinni stofu, borðstofu og eldhúsi, ásamt stórri verönd. Hjónaherbergi, með en-suite baðherbergi, opnast einnig út á verönd. Í boði eru tvær tegundir húsa; hús á einni hæð, með möguleika á þakverönd og hús á tveimur hæðum með stórri verönd á efri hæð. Húsin eru tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, þeim fylgja innbyggðir fataskápar, gólfhiti, myndbandsdyrasími og bílastæði á lóð með hleðslustöð fyrir rafbíla.
Húsin eru byggð með hágæða efnum og velja má um aukahluti, svo sem einkasundlaug, kjallara, lýsingarpakka eða þakverönd fyrir einbýlishús á einni hæð.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum