Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
Þessi eign er ekki í boði
REF 3179936
Ný raðhús við La Finca Golf. Við golfvöllinn má finna 5 stjörnu SPA hótel, fallegt klúbbhús og verslunarkjarni. Frá húsunum er frábært útsýni yfir dalinn og íbúðahverfið er í aðeins 10-15 mínútna fjarlægð frá ströndum Guardamar og Torrevieja.
Í boði eru hús með eða án kjallara, 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Þau samanstanda af stofu og borðstofu með opnu og björtu alrými, nútímalegu eldhúsi með tækjum, þvottahúsi og verönd. Hús með kjallara eru afhent með kjallaranum óunnum en ýmsir möguleikar eru í boði til frágangs á þeirri íveru gegn aukakostnaði. Stór garður með einkasundlaug og bílastæði á lóð er ennfremur við eignina, auk sameiginlegrar sundlaugar í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum