Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 1942485
Nýr kjarni einbýlishúsa á hinu vinsæla Doña Pepa svæði í Ciudad Quesada. Nálægt öllum nauðsynlegum þægindum eins og stórmörkuðum, bönkum, apótekum, heilsugæslustöð o.fl. og í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Guardamar. Fyrir þá sem njóta vilja útiveru er La Marquesa golfklúbburinn í stuttri akstursfjarlægð og La Mata þjóðgarðurinn er í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð. Húsin eru á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, þremur veröndum, stórri þakverönd, garði og einkabílastæði. Nútímaleg hönnun sameinar stofu, borðstofu og eldhús í rúmgott alrými með stórum gluggum sem hleypa inn náttúrulegu ljósi. Á jarðhæð er svefnherbergi, með sérverönd og en-suite baðherbergi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi (eitt en-suite), hvert með sér verönd. Þakveröndin er 40m2 og tilvalin til skemmtunar eða slökunar á meðan njóta má útsýnis yfir La Mata lónið. Frá bakgarðinum er aðgangur að innri gönguleiðinni að sameiginlegu svæði, með stórri sundlaug, görðum og leiksvæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum