Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Þessi eign er ekki í boði
REF 230641
Nútímalegt raðhús með einkasundlaug í Daya Vieja, við suður Costa Blanca, sjarmerandi smábæ sem býður uppá alla nauðsynlega þjónustu, svo sem matvöruverslanir, banka, apótek og veitingahús. Strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð.
Boðið er upp á tveggja hæða hús með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, opnu svæði með fullbúnu eldhúsi og stórum veröndum á báðum hæðum. Húsunum er skilað með flísalagðri lóð, einkasundlaug og bílastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Formentera del Segura
Formentera del Segura er dæmigert spænskt þorp í Alicante héraði, sem staðsett er á bökkum Río del Segura. Friðsælt svæði til að njóta náttúrulegs umhverfis en stutt er að aka til helstu ferðamannasvæða, svo sem Guardamar, Torrevieja og Orihuela Costa.
Gott úrval af daglegum þægindum má finna í þorpinu, auk vikulegs útimarkaðar þar sem kaupa má ýmsar afurðir bænda á svæðinu. Glæsilegar strendur Guardamar eru aðeins 10 km í burtu, sem gerir Formentera að kjörnum stað til að njóta hefðbundins spænsks lífsstíls.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum