Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 3925509
Kjarni einbýlishúsa, aðeins 800m frá ströndinni í Guardamar, við suður Costa Blanca. Bærinn Guardamar er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð og býður uppá mikið úrval af daglegum nauðsynjum, svo sem matvöruverslanir, læknamiðstöð, banka og apótek. Á göngusvæðinu við ströndina má njóta dásamlegs útsýnis og matargerðarinnar við Miðjarðarhafið. Kjarninn er vel tengdur öðrum þéttbýliskjörnum, eins og Alicante og Torrevieja, um þjóðveginn N332. Um er að ræða lítinn kjarna tveggja hæða einbýlishúsa með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum.
Á neðri hæð er rúmgóð setustofa, borðstofa og eldhús en alrýmið opnast út á litla verönd. Stórar glerhurðar í setustofunni opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta til, ásamt sundlaugarsvæði. Svefnherbergi og baðherbergi eru á jarðhæð, og 2 en-suite svefnherbergi á efri hæð, bæði með aðgangi að verönd með fallegt útsýni yfir La Mata saltvatnið. Byggja má þakverönd og/eða kjallara, allt eftir byggingarstigi, gegn aukagjaldi. Húsin eru með nútímalegri hönnun sem gerir það mögulegt að njóta skugga og sólríkra svæða allan daginn.
Eignunum fylgir loftkæling, eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, fataskápar, LED lýsing. inni og úti, garður með gervigrasi og staðbundnum plöntum, einka saltvatnslaug með foruppsetningu fyrir varmadælu og bílastæði á lóð.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum