Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
Þessi eign er ekki í boði
REF 201610
Flottar íbúðir, staðsettar 100 metra frá sjó í Aguamarina, Orihuela Costa, á milli Cabo Roig og Campoamor. Sportbátahöfnin er í 5 mínútna akstursfjarlægð, Las Ramblas golfvöllurinn í 10 mínútna fjarlægð og hin stórkostlega verslunarmiðstöð La Zenia Boulevard er í aðeins 7 mínútna fjarlægð. Staðurinn er tilvalinn fyrir þá sem leita að eign á Spáni, hvort sem er til búsetu eða sumarfría.
Íbúðirnar eru ýmist með 2 eða 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stórri verönd. Bílastæði í bílageymslu ásamt geymslu fylgir með í kaupunum. Frábær sameiginleg aðstaða fylgir, svo sem útisundlaug, svæði til afslöppunar og stórir garðar. Auk þess er til staðar félagsaðstaða með upphitaðri laug til sunds, spa, sauna og búningsklefum og í boði er salur þar sem halda má samkomur. Flestar íbúðanna njóta fallegs útsýnis yfir hafið.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Campoamor
Campoamor hefur að geyma eitt fegursta landslag á allri Orihuela Costa. Hið fullkomna jafnvægi milli stranda og furuskóganna, sem ná allt frá Sierra Escalona til Dehesa de Campoamor, gera að verkum að þetta er hinn fullkomni staður til að finna fasteign nálægt ströndu í náttúrulegu umhverfi.
Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Campoamor
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum