Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
REF 5816444
Ný íbúðasamstæða, aðeins 950m frá sjónum í Guardamar del Segura. Samstæðan er staðsett mjög nálægt höfninni og við hliðina á fallegum furuskógi og sandöldunum sem er rétt við bæinn Guardamar. Bærinn er einn helsti ferðamannastaðurinn á Costa Blanca, býður upp á fjölbreytta þjónustu og nokkrar af bestu ströndum Alicante strandarinnar. Mjög gott vegakerfi gerir það að verkum að greitt aðgengi er að Torrevieja en það tekur um 15 mínútut að aka þangað, til Santa Pola á 20 mínútum og á Alicante og alþjóðaflugvöllinn á 30 mínútum.
Samstæðan samanstendur af íbúðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, í mismunandi gerðum: jarðhæð með sér garði, miðhæð með verönd og þakíbúð með einka þakverönd. Margar íbúðirnar taka alla hæðina og bjóða íbúum mikið næði. Allar þeirra eru með opinni stofu og með útgengi út á verönd, auk hjónaherbergis sem er með sér baðherbergi. Sumar íbúðir eru með sjávarútsýni.
Íbúðirnar eru byggðar í hæsta gæðaflokki og eru með gólfhita á baðherbergjum, Climalit tvöfalt gler og bílastæði utandyra.
Samstæðan er með stóra sameiginlega sundlaug og rúmgóð garðrými, sem eru fullkomin til að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum