Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, La Zenia
Þessi eign er ekki í boði
REF 926731
Nýr kjarni einbýlishúsa í La Zenia, við hliðina á Villamartín golfvellinum, fimm mínútur frá verslunarmiðstöðinni Zenia Boulevard og tíu mínútur frá La Zenia ströndinni.
Nútímaleg einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, á tveimur hæðum. Jarðhæð samanstendur af opinni setustofu með borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd með einkasundlaug og garði. Svefnherbergi og baðherbergi má einnig finna á þessari hæð. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi til viðbótar, baðherbergi og verönd. Öllum húsum fylgja eldhústæki, foruppsetning fyrir loftkælingu, gólfhiti á baðherbergjum og hellulagt bílastæði á lóð. Gegn aukakostnaði má byggja þakverönd og/eða einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, La Zenia
La Zenia er einn af vinsælustu stöðunum á Orihuela Costa. Frábærar strandirnar hafa árum saman skorið sig úr vegna Bláa Fánans, en fjölbreytt fasteignaframboð og óviðjafnaleg þjónusta er megin aðdráttarafl La Zenia.
La Zenia heyrir undir svæðið Orihuela Costa og þar má finna stærstu verslunarmiðstöð Alicante-héraðs, La Zenia Boulevard. Það er án efa góð fjárfesting að eignast fasteign í La Zenia. Hér má sjá fasteignirnar við strandlengjuna í La Zenia
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum