Lúxus einbýli í fyrstu línu við golfvöll, með 4 svefnherbergjum, kjallara og tveimur sundlaugum í Las Colinas

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf

Þessi eign er ekki í boði


4

4

570.90 m2

1589.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 2622106

Lúxus einbýlishús, staðsett á hinu frábæra svæði, Las Colinas Golf & Country Club, við suður Costa Blanca. Svæðið einkennist af fallegri náttúru og völlurinn sjálfur er 18 holu golfvöllur, með klúbbhúsi, þjónustumiðstöð og veitingastöðum. Las Colinas er þekktur fyrir rólegheit og fegurð en er mjög nálægt daglegum þægindum á nærliggjandi svæðum og bæjum, eins og Orihuela Costa og Torrevieja. Íbúar hafa aðgang að einka strandklúbbi við Campoamor ströndina.

Húsið er í fremstu línu við golfvöllinn og byggt á 1,589m2 lóð. Einn eftirsóknarverðasti staðurinn á svæðinu, með útsýni yfir sjó. Eignin er 570m2 og byggð á tveimur hæðum, ásamt kjallara. Jarðhæðin hefur stórt opið eldhús, stofu og borðstofu, með aðgangi að verönd og infinity sundlaug, með glæsilegu útsýni. Á hæðinni er einnig hjónaherbergi með en-suite baðherbergi ásamt gestasalerni og þvottahúsi. Efri hæðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, baðherbergi og hjónaherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi. Öll svefnherbergi á efri hæð hafa aðgang að rúmgóðri verönd.

Kjallarinn er án efa hápunktur þessarar eignar en hann er hannaður sem aðstaða til slökunar, með heimabíói, upphitaðri innisundlaug, búningsherbergi, nuddpotti, gufubaði, gestasalerni og lyftu sem tengir allar hæðir. Í kjallara er enn fremur bílskúr. Frá innisundlauginni er aðgangur að fallegum garðinum og útisvæði með grillaðstöðu.

Húsið er selt með húsgögnum sem valin eru af kostgæfni og smekksemi og er þannig fullbúið. Gólfhiti er á öllu húsinu (þar með talið í kjallara). Snjallkerfi fylgir eigninni sem og vökvunarkerfi í garði.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • afgirt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf

Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.

Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.

  • 68 km
  • 6 km
  • 20 km
  • 6 km
  • 9 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Las Colinas Golf

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.