Einbýlishús með 3 svefnherbergjum, kjallara og einkasundlaug í Santa Rosalia Lake and Life Resort

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

frá 69,030,990 kr
frá 459.900€

3

3

119.32 m2

218.75 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4828566

Nútímaleg einbýlishús í Santa Rosalía Lake and Life Resort við strendur Murcia. Kjarninn hefur verið hannaður á einstakan hátt og hentar bæði sem heimili fyrir þá sem hyggjast setjast þar að varanlega sem og þá sem vilja eiga athvarf í sólinni. Kjarninn er byggður í kringum kristaltært vatn sem minnir á strönd. Til viðbótar við þau fjölmörgu vatnasport sem hægt er að stunda á vatninu býður kjarninn upp á önnur tækifæri til útivista, s.s. blak, mini golf, yoga, líkamsrækt og margt fleira, auk verslunarsvæðis og strandklúbbs með veitingastað. Los Alcazares og fallegur strendur Mar Menor er eingöngu í 4 km fjarlægð. Kjarninn er alveg lokaður og býður íbúum þar af leiðandi upp á öruggt umhverfi.

Nútímaleg 2ja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, kjallara, með eða án einkasundlaugar. Öll húsin eru með eldhúsið, stofuna og borðstofuna, á jarðhæðinni, í einu opnu rými sem opnast út á verönd og garðsvæðið. Tvöfalt svefnherbergi og stórt baðherbergi er á sömu hæð. Hin 2 svefnherbergin eru á efri hæðinni, bæði með sér baðherbergi og aðgengi út á verönd með útsýni yfir garðinn. Hjónaherbergið er einnig með sérverönd. Kjallarinn er 80m2 og getur nýst sem tómstundaherbergi, bíósalur, stór stofa, líkamsrækt eða hvað sem er. Við kjallarann er verönd sem teygir sig að garðsvæðinu.

Húsin verða byggð með úrvals byggingarefnum og verður hægt að breyta innréttingum, litum og hönnun ef því er að skipta. Húsunum fylgir tengi fyrir loftkælingu, eldhústæki, gólfhiti í baðherbergjum, rafknúnar gardínur, inni- og útilýsing, fullgerður garður, einkasundlaug með sumum húsanna og bílastæði.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares

Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.

Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.

  • 24 km
  • 22 km
  • 17 km
  • 38 km
  • 29 km
  • 25 km

Nánari upplýsingar um Los Alcázares

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.