Íbúðir með stórri verönd í Malaga

Costa del Sol, Málaga

frá 67,545,000 kr
frá 450.000€

2

2

103.55 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5502063

Nýr kjarni íbúða staðsettar í fallegu íbúðahverfi í útjaðri Malaga. Fullkomin staðsetning, í rólegu umhverfi og í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá miðbænum, með alhliða þjónustu og afþreyingu. Borgin Malaga er þekkt fyrir frábært listrænt og menningarlegt umhverfi, með meira en 36 söfnum og listasöfnum, að ógleymdri fallegu strandlengjunni sem laðar að sér gesti allt árið um kring. Þökk sé góðum vegatengingum er hægt að komast fljótt til annarra ferðamannastaða á Costa del Sol, eins og Rincón de la Victoria á 10 mínútum, Torremolinos á 20 mínútum eða Fuengirola á 30 mínútum. Ennfremur eru alþjóðaflugvöllurinn og háhraðalestarstöðin í aðeins 15 mínútna fjarlægð frá kjarnanum.

Þessi bygging býður upp á íbúðir með 1, 2, 3 og 4 svefnherbergjum, fáanlegar í mismunandi gerðum: jarðhæð og miðhæð með stórum veröndum, og þakíbúðir með þakverönd. Allar eignirnar bjóða upp á opna stofu með eldhús, borðstofu og stofu í einu stóru rými, með stórum gluggum út á verönd. Hjónaherbergið er með baðherbergi inn af, nema íbúðirnar sem eru með 1 svefnherbergi.

Eignirnar eru vandaðar og þeim fylgir loftræstikerfi, tvöfalt gler, álgardínur, myndsími, ljósleiðarauppsetning og gagnatengingar í stofu, svefnherbergjum og í eldhúsi. Sjónvarpsinnstunga er á verönd, og bílskúrsrýmið er með foruppsetningu fyrir rafbílahleðslu. Eignunum fylgir einnig geymsla.

Svæðið er algjörlega lokað sem tryggir næði og öryggi íbúa. Þá er kjarninn með frábærum sameiginlegum svæðum. Þar er saltvatnssundlaug fyrir fullorðna og barnalaug með fossi, stórir garðar, salerni og búningsklefar, fullbúið íþróttahús, leiksvæði fyrir börn og „gastrobar“.

See more...

  • verönd
  • bílageymsla í kjallara
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Málaga

Málaga borg, höfuðborg samnefnds héraðs, er staðsett við vesturhluta Miðjarðarhafsins á suðurströnd Spánar, í um 100km fjarlægð frá Gíbraltarsundi. Íbúafjöldi borgarinnar er um 580.000 og hún þannig önnur fjölmennasta borg Andalúsíu og sjötta í röðinni yfir Spán í heild sinni. Borgin var stofnuð af Föníkumönnum á áttundu öld fyrir Krist, sem gerir hana enn fremur að einni elstu borg Evrópu. 

Fyrir utan sólríkar strendur, býr þessi borg við rætur Miðjarðarhafsins að mjög áhugaverðum menningarhefðum. Staðurinn sem bauð snillinginn Pablo Picasso velkominn í heiminn, hefur á undanförnum árum aukið við menningararfinn og opnað söfn við allra hæfi. Í borginni má finna einu Pompidou miðstöðina utan Frakklands. 

Á síðustu árum hefur Málaga bæst í hóp bæjarfélaga sem kalla má hefðbundna áfangastaði þeirra sem velja þann kost að koma sér upp heimili í sólinni, á borð við Marbella og Benahavís, þökk sé ríkara menningarlegu framboði, úrvali tómstunda og dægradvalar, tæknivæðingu í borginni og nútímalegri aðlögun að grunnþörfum þeirra sem ferðast og dvelja á staðnum. Það er notalegt að ganga um borgina sem verður alltaf vinsælli og sjá hvernig Alcabaza virkið, Castillo de Gibralfaro kastalinn og dómkirkjan, La Catedral, blandast við önnur hverfi eins og listamannahverfið Soho, með veröndum þar sem má tylla sér og snæða…eða fyrir þá sem elska að versla, að kanna merkar verslanagötur. 

  • 16 km
  • 3 km
  • 3 km
  • 2 km
  • 0 km
  • 5 km

Nánari upplýsingar um Málaga

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.