Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
REF 5642515
Nútímalegar íbúðir á La Serena golfvallarsvæðinu, innan við 2 km frá ströndinni. Þessi ótrúlegi íbúðakjarni á Murcian-ströndinni er líka í aðeins 10 mínútna fjarlægð frá hinum rótgróna bæ Los Alcazares, með fullkomnu úrvali af þjónustu og þægindum, eins og matvöruverslunum, veitingastöðum, bönkum, apótekum og læknamiðstöð. Kjarninn sjálfur inniheldur 18 holu golfvöll, auk klúbbhússins, með pro-shop, veitingastað og bar með stórkostlegu útsýni yfir golfvöllinn og Mar Menor. Það er ýmis útivist í boði á svæðinu, eins og hjólreiðar og fjallahjólreiðar, sem og siglingar eða köfun á fallegu Mar Menor ströndunum. Hið frábæra vegakerfi gerir það mögulegt að komast til Murcia-flugvallarins á 30 mínútum, en Alicante-flugvöllurinn er aðgengilegur á rúmri klukkustund.
Kjarninn mun samanstanda af þremur fjölbýlishúsum, með íbúðum með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum (1 en-suite) og fáanlegar í mismunandi gerðum: jarðhæð með rúmgóðum garði, miðhæð með verönd og þakíbúð með sér þakverönd. Allar íbúðirnar eru með hagnýtu skipulagi, með opinni stofu, sem sameinar setustofu, borðstofu og eldhús með þvottahúsi í eitt rými. Stórir gluggar í setustofunni opnast út á verönd. Það fer eftir hæð íbúðarinnar, en flestar íbúðirnar njóta einnig stórbrotins útsýnis yfir golfvöllinn og Mar Menor.
Íbúðirnar munu innihalda foruppsetningu fyrir loftræstikerfi, fullbúið eldhús, innbyggða fataskápa og bílastæði á sameiginlegu bílastæði.
Samstæðan er algjörlega lokuð, með stóru sameingarsvæði, þar á meðal sundlaug og sólbaðssvæði, sem allir íbúar geta notið.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum