Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 2867969
Einbýli í glæsilegu íbúðahverfi Cumbre del Sol, milli borganna Javea og Moraira, við norður Costa Blanca. Hverfið er búið myndavélarvöktun allan sólarhringinn og býður að auki uppá margs konar þjónustu, svo sem stórmarkað, apótek, veitingastaði og alþjóðlegan skóla. El Moraig ströndin er í stuttri akstursfjarlægð og val er um nokkra golfvelli í nágrenninu.
Húsið er byggt á einni hæð, á stórri lóð eða 1.111m2, með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og kjallara. Eldhúsið er hálfsjálfstætt og rúmgóð borðstofa og stofa snúa að stórri verönd og sundlaugarsvæði. Húsið snýr í suðvestur, með frábæru útsýni yfir Cabo de la Nao, El Portet og Calpe. Svefnherbergin eru með fataskápum og hjónaherbergið er með sér baðherbergi. Hægt er að breyta 71m2 kjallaranum í aðskilda íbúð með sjálfstæðum inngangi.
Húsið er afhent með loftkælingu, eldhústækjum, gólfhita, lýsingu og fullbúnum garði. Lagt er fyrir þvottahúsi og bílastæði er á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol
Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.
Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana
Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.
Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.
Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum