Costa Blanca Norður, Marina Baja, Alfaz del Pi - El Albir
REF 3065466
Nýr kjarni einbýlishúsa, staðsettur milli Altea og Benidorm, við norður Costa Blanca. Öll nauðsynleg þjónusta er í göngufæri, og aðeins 5 mínútna akstur að Albir ströndinni í Alfaz del Pi. Benidorm, með dægradvöl og skemmtigörðum, er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Hús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Húsin eru á tveimur hæðum, auk kjallara/bílskúrs og þakverandar. Jarðhæð húsanna er sérstök fyrir það að henni er skipt í tvær hæðir, með eldhúsi og borðstofu á efri palli og stofu með lofthæð á neðri palli. Svefnherbergi eru á efri hæð húsanna og hafa eigin verönd. Stór þakverönd býður uppá fallegt útsýni yfir fjöll og haf. Í kjallaranum er bílskúr með pláss fyrir allt að tvo bíla og annað svæði með salerni, sem má hanna að vild. Garðurinn er sérstaklega hannaður fyrir næði og þaðan má njóta áhrifa infinity sundlaugarinnar, bæði frá kjallara og jarðhæð.
Hágæða frágangur er á húsunum og þeim fylgir loftkæling/hitun, gólfhiti á baðherbergjum, innanhússlýsing, myndavélardyrasími og velja má um ´snjallt heimili´.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Alfaz del Pi - El Albir
Alfaz de Pi er bær við Norður Costa Blanca, sem liggur að Altea og Benidorm. Þéttbýliskjarnann er að finna í hlíðum Sierra Helada, um 3 km. upp af ströndinni. Bærinn hefur einnig yfir að ráða 4 km. strönd, þar sem ströndin El Albir stendur fram úr.
Strönd sett steinum þar sem finna má ýmis konar þjónustu og tómstundir sem boðið er upp á í bænum, ásamt einstöku úrvali af íbúðum. Hér eru margir þéttbýliskjarnar með einbýlishúsum og íbúðum við ströndina, sem eru algengustu húsin á Alfaz del Pi. Mikils metið svæði vegna vel efnaðra íbúanna sem kaupa við ströndina. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Alfaz del Pi - El Albir.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum