Einstök einbýlishús með 3 svefnherbergjum, kjallara og útsýni í Finestrat

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat

frá 98,915,900 kr
frá 659.000€

3

3

285.85 m2

348.10 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4971648

Nýr kjarni einbýlishúsa með frábæru útsýni í Finestrat, á norðurhluta Costa Blanca. Frábær staðsetning, í rólegu umhverfi sem nýtur mikillar náttúrufegurðar en þó stutt frá öllum þægindum sem fylgja því að búa í borg, og stutt frá La Marina verslunarmiðstöðinni á Benidorm. Svæðið býður upp á mikla þjónustu, s.s. nokkra golfvelli, göngustíga, vantasport á ströndunum, sem og tækifæri til afþreyingar fyrir alla fjölskylduna, s.s. Terra Mítica skemmtigarðinn, Aqualandia og Benidorm Palace, auk úrval næturklúbba og bari. Vegirnir N332 og AP7 tengja svæðið við Costa Blanca og flugvöllinn í Alicante en hann er í um klukkustundarfjarlægð frá kjarnanum.

Einstök 2ja hæða hús sem eru fáanleg með eða án kjallara, byggð á lóð sem er um 350-400m2. Báðar útgáfur húsanna eru með opnu skipulagi með mikilli lofthæð, nútímalegt eldhús og rúmgóða borðstofu sem opnast út á verönd sem er með hálf-yfirbyggðri pergólu og veröndin því kjörin til að njóta kvöldverðar. Stórir gluggar í stofunni opnast út í garðinn og sundlaugarsvæðið. Á hæðinni er tvöfalt svefnherbergi og baðherbergi. Hin tvö herbergin eru á efri hæðinni, annað með fataherbergi og sér svalir. Innangent er upp á þakveröndina sem er 43m2 og býður upp á stórkostlegt útsýni.

Húsin sem eru með kjallara eru með stórt tómstundarými sem er 66m2, með þvottaherbergi og gestasalerni. Kjallarinn er aðgengilegur innanfrá og utanfrá en við innganginn að utan er falleg ensk verönd. Tveir inngangar gera það að verkum að hægt er að útbúa kjallarann sem íbúð. Einnig er hann kjörinn sem bíósalur, vínkjallari, líkamsrækt eða hvað sem er.

Boðið er upp á að kaupendur hanni húsin að vild og er hægt að velja úr miklu úrvali af innréttingum, gólfefni og þess háttar. Húsin skilast með tengi fyrir loftkælingu, fullbúnum fataskápum, LED lýsingu í eldhúsi og baðherbergjum, tengi fyrir öryggiskerfi, sólar sellur, einkasundlaug með tengi fyrir hitapumpu og bílastæði.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat

Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.

Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.

  • 41 km
  • 34 km
  • 34 km
  • 4 km
  • 32 km
  • 5 km

Nánari upplýsingar um Finestrat

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.