Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 1752926
Glæsilegur kjarni íbúða í Finestrat, með útsýni yfir borgina Benidorm og hafið. Staðsetningin er einstök, í nánd við fjöllin og sjóinn og í aðeins nokkra mínútna akstursfjarlægð frá Benidorm og nokkrum verslanakjörnum. Góð tenging er við borgina Alicante, flugvöllinn og restina af héraðinu með nálægð við þjóðveginn og AP-7 hraðbrautina.
Í boði eru mismundandi eignir, allt frá íbúðum á einni hæð og íbúðum á tveimur hæðum með þakverönd og garði, til einbýlishúsa á stórum lóðum. Velja má um 1-4 svefnherbergi, í mismunandi blokkum, á misjöfnu verði en eignirnar snúa í misjafnar sólaráttir. Í kjarnanum eru stór sundlaug og busl-laug ásamt íþróttaaðstöðu, upphitaðri innanhúss sundlaug og félagsaðstöðu með veitingastað.
Frábært tækifæri til að fjárfesta með mikla möguleika á útleigu og til að njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið. Fyrstu eignir verða afhentar í vorlok 2020.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum