Costa Blanca Norður, Marina Baja, Villajoyosa
Þessi eign er ekki í boði
REF 3145
Þetta stórkostlega lúxus einbýli er staðsett aðeins 300 metra frá strönd í Montiboli sem er sannkallað forréttindasvæði á Costa Blanca. Montiboli er staðsett milli bæjanna Villajoyosa og Benidorm, með fyrirtaks tengingu við vegakerfið, alla þjónustu í næsta nágrenni og fallega strönd í túnfætinum.
Einstök innanhússhönnun prýðir húsið og hágæðavörur eru notaðar við bygginguna, svo sem marmari og húsið er búið hita í gólfum. Lyfta er í húsinu, eldhúsið er glæsilega hannað og garðurinn er frágenginn með grasflöt og timburpalli umhverfis sundlaugina. Húsið er á tveimur hæðum, auk kjallara. Jarðhæðina prýðir rúmgóð stofa á pöllum með aðskildum svæðum, þar er eldhúsið að auki og eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Á efri hæð eru 3 svefnherbergi, öll með eigin baðherbergi og rúmgóðar svalir. Á húsunum er verönd á þaki með timburpalli og dásamlegum heitum potti til að njóta útsýnisins frá.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Villajoyosa
Villajoyosa er á milli Alicante og Benidorm og þekkist einnig undir nafninu La Vila.
Borgin er fræg fyrir súkkulaði, márísk og kristin hátíðahöld og, þökk sé góðri staðsetningu, blómstrandi ferðaþjónustu. Þetta er róleg borg sem hefur varðveitt hefðbundna töfra Miðjarðarhafsins, með sínum fræga gamla miðbæ í öllum regnbogans litum, strandgötunni og iðandi höfninni. Við Villajoyosa er að finna 13 víkur og strendur sem umkringdar eru íbúðabyggðum með framúrskarandi fasteignaframboði. Hjá Medlan er að finna lúxushúsnæði við ströndina í Playa Paraíso. Skoðið fasteignirnar við ströndina í Villajoyosa:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum