Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 3072731
Nýr kjarni, staðsettur milli bæjanna Altea og Calpe í norðurhluta Costa Blanca. Kjarninn er staðsettur á hæð, með frábæru útsýni yfir hafið og í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá ströndinni. Miðbær Altea, með öllum daglegum nauðsynjum, er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Þetta er kjörinn fjárfestingarkostur þar sem njóta má náttúrulegs umhverfis en að sama skapi vera nálægt bænum sjálfum.
Þessi frábæri kjarni samanstendur af íbúðum af fjórum gerðum; íbúð á jarðhæð með 2 eða 3 svefnherbergjum; íbúð á tveimur hæðum með 2 svefnherbergjum og íbúð á þeimur hæðum með 3 svefnherbergjum auk kjallara og þakverandar. Allar íbúðirnar hafa ótrúlegt sjávarútsýni frá rúmgóðri veröndinni, út af opinni stofu, borðstofu og eldhúsi.
Í eignum á tveimur hæðum er kjallari sem skiptist í geymslu, þvottahús og fjölnota herbergi sem nýta má að vild, t.d. sem auka stofu, líkamsræktaraðstöðu eða afþreyingaraðstöðu.
Íbúðir á þremur hæðum eru einnig með kjallara sem skiptist í geymslu og fjölnota herbergi. Þessar íbúðir eru með lyftu sem tengir allar hæðir.
Sameiginlegt svæði er með svokallaðri infinity sundlaug og stórum görðum en þaðan má njóta fallegs útsýnis yfir Miðjarðarhafið. Öll stæði í bílageymslu eru tilbúin fyrir uppsetningu á hleðslukerfi fyrir rafbíla.
Allar íbúðirnar hafa loftkælingu/hitun, lýsingu í eldhúsi og á baðherbergjum og bílastæði.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum