Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Þessi eign er ekki í boði
REF 2423401
Kjarni einbýlishúsa sem staðsett eru í íbúðahverfi í Finestrat, umkringd náttúrunni og með frábæru útsýni yfir Benidorm og Miðjarðarhafið. Verslanakjarni er í næsta nágrenni, með fjölbreyttu úrvali daglegra þæginda og borgin Benidorm, með stórkostlegum ströndum, afþreyingu og skemmtigörðum, er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Kjörin staðsetning fyrir dvöl í fríum eða fasta búsetu.
Húsin eru byggð á 393-517m2 lóðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, en velja má um skipulag. Öll húsin hafa aðalhæð sem samanstendur af rúmgóðri stofu, borðstofu og eldhúsi, með aðgangi að stórri verönd sem er yfirbyggð að hluta til. Á þessari hæð eru ennfremur 3 svefnherbergi, hvert með sér baðherbergi. Valið um skipulag snýr að efri hæð húsanna. Velja má milli rúmgóðrar þakverandar með sólskyggni eða auka herbergis og þakverandar. Það herbergi má þá nota sem auka svefnherbergi, skrifstofu, líkamsræktaraðstöðu eða það sem hugurinn girnist.
Húsin eru björt og falleg og innihalda loftkælingu/hitun, öryggiskerfi, gervigras, hleðslustöð fyrir rafbíla og sjálfvirkt hlið fyrir bílastæði á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum