Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 3072583
Íbúðakjarni, aðeins 20m frá ströndinni, á vinsælu svæði í Altea, við norður Costa Blanca. Í göngufæri frá ýmsum börum og veitingastöðum, og stuttur akstur til miðbæjar Altea, þar sem fjölbreyttari þjónusut er að finna. Þessar íbúðir eru flokkaðar sem ferðamannaíbúðir og njóta allra þæginda á við íbúðahótel, með móttöku, sameiginlegum sundlaugum og einkabílastæði. Tilvalið tækifæri til fjárfestingar, þökk sé staðsetningu og tegund eignar.
Í boði eru íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opinni stofu og borðstofu og sjálfstæðu eldhúsi. Stofan og hjónaherbergið snúa að rúmgóðri verönd í austurátt, með frábæru útsýni yfir höfnina og Miðjarðarhafið. Hverri íbúð fylgir loftkæling/hitun, fullbúið eldhús, geymsla og ómerkt bílastæði á opnu bílastæði.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum