Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
REF 4989915
Einstakur kjarni einbýlishúsa með sjávarútsýni í Finestrat. Svæðið er vel staðsett í nálægð við mikla þjónustu og afþreyingu þar á meðal verslunarmiðstöðina La Marina. Benidorm og strendurnar þar í kring eru stutt frá en þar er að finna alls kyns afþreyingu, mat og menningu. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu og er auðvelt að aka til Altea og Alicante, en flugvöllurinn í Alicante er eingöngu í 40 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn býður upp á einstök einbýlishús með 3 svefnherbergjum, hvert með baðherbergi innaf, byggð á lóðum sem eru 468-622 m2 og eru fáanleg í þremur útgáfum:
Model 1: Hús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og bílskúr með stæði fyrir 2 bíla
Model 2: Hús á tveimur hæðum með svefnherbergi á jarðhæð, 2 svefnherbergi á annarri hæð, þvottaherbergi, geymslu og tómstundarými í kjallara.
Model 3: Hús á einni hæð með 3 svefnherbergjum, með bílskúr og líkamsrækt í kjallaranum
Öll húsin eru með opnu skipulagi og stofu sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæðið. Gestasalerni er í húsunum og lyfta. Í öllum baðherbergjum er frístandandi baðkar.
Húsin eru byggð úr úrvals byggingarefnum og þeim fylgir loftkæling með Airzone stjórnborði, eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, rafstýrðar gardínur, LED inni- og útilýsing, lyfta, sóalrsellur, “infinity” sundlaug, útisturta, fullgerður garður með gervigrasi og sjálfvirkri hurð í bílskúrinn.Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum