Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
Þessi eign er ekki í boði
REF 4323954
Einbýlishúsakjarni við La Finca golf, við suður Costa Blanca. Allar daglegar nauðsynjar má finna á staðnum, svo sem verslanakjarna, klúbbhús og fimm stjörnu hótel með spa aðstöðu ásamt golfskóla. Bærinn Algorfa er aðeins í 2 mínútna akstursfjarlægð en þar má finna meira úrval þjónustu. Strendur Guardamar eru aðeins í 15 mínútna akstursfjarlægð.
Nútímaleg einbýlishús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, auk kjallara. Jarðhæðin samanstendur af stofu, borðstofu og hálf-sjálfstæðu eldhúsi ásamt gestasalerni og verönd, garður og sundlaugarsvæði er aðgengilegt frá stórum glerhurðum í stofu. Hjónaherbergi með sér baðherbergi er einnig á jarðhæð. Önnur 2 svefnherbergi, með sér baðherbergi og fataherbergi, eru á efri hæð. 75m2 kjallarinn er fjölnota rými, með ýmsum valmöguleikum en þar má til dæmis útbúa auka svefnherbergi og baðherbergi, eða bílskúr fyrir tvo bíla. Einnig er möguleiki á að setja upp þakverönd.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun, gólfhiti er á baðherbergjum, fataskápar fylgja, ásamt einkasundlaug, myndavélardyrasíma, rafdrifnu hliði og bílastæði á lóð en þar er lagt fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum