Nútímaleg einbýlishús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og þakverönd í La Finca Golf

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

frá 51,634,400 kr
frá 344.000€

3

2

103.70 m2

236.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5326508

Nýr einbýlishúsakjarni á La Finca Golf svæðinu, sem er einungis í 10 mínútna fjarlægð frá stórkostlegum ströndum Guardamar á suðurhluta Costa Blanca. Á svæðinu er verslunarkjarni með öllum helstu nauðsynjum, veitingastöðum og 5* hóteli með heilsulind, 18 holu golfvelli og frábæru klúbbhúsi með alls kyns íþróttatengdri aðstöðu. Í nágrannabæjunum Algorfa, Quesada og Benijófar er að finna frekari þjónustu sem og banka og apótek og jafnvel alþjóðlegan skóla. Svæðið er vel tengt hraðbrautum svo auðvelt er að komast til flugvallarins í Alicante á um 50  mínútum.

Nútímaleg einbýlishús á einni hæð auk sólstofu, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, og byggð á lóðum sem eru frá 236m2 - 316m2. Aðalstofan er rúmgóð með opinni setustofu, borðkrók og eldhúsi, með stórum gluggum sem opnast út á yfirbyggða verönd sem er með pergólu og garði. Hjónaherbergið er með sérbaðherbergi og opnast út á verönd. Ytri stiginn, á hlið hússins, leiðir að rúmgóðri verönd þar sem hægt er að njóta milda Costa Blanca loftslagsins allt árið um kring.

Húsunum fylgja tengi fyrir loftkælingu, eldhústæki, lýsing í eldhúsi og baðherbergjum, fullbúinn garður, auk bílastæðis innan lóðar.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca

La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.

Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.

  • 33 km
  • 19 km
  • 14 km
  • 12 km
  • 13 km
  • 2 km

Nánari upplýsingar um La Finca

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.