Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 3080045
Nýr íbúðakjarni í hinum vinsæla bæ Benijófar, milli Quesada og Rojales, við suður Costa Blanca. Tilvalinn staður fyrir þá sem eru án bíls, með alla nauðsynlega þjónustu í næsta nágrenni og marga veitingastaði, bari og kaffihús, allt í göngufæri. Aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð er að Marquesa golfvellinum og 10 mínútur tekur að aka til stranda Gaurdamar.
Kjarninn er á þremur hæðum, með íbúðum á efstu hæð og verslunareiningum á tveimur hæðum fyrir neðan.
Íbúðirnar eru fullbúnar og tilbúnar til innflutnings, með 2 svefnherbergjum, 1 baðherbergi og opinni stofu með borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd með víðáttumiklu útsýni yfir nærliggjandi landslag. Sameiginleg þakverönd og sundlaug stendur íbúum til boða.
Allar íbúðirnar eru með loftkælingu/hitun, húsgögnum, eldhústækjum og eldhúsbúnaði og rafknúnum gluggahlerum. Tilbúnar til innflutnings og frábært fjárfestingartækifæri.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum