Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 2814092
Nýr kjarni raðhúsa í Rojales, dæmigerðu spænsku þorpi í Alicante héraði, við suður Costa Blanca. Rojales hefur allt sem þarf til daglegs lífs, eins og matvöruverslanir, apótek, verslanir og veitingastaði og er mjög nálægt hinu vinsæla hverfi Ciudad Quesada, þar sem finna má golfvöll, vatnagarð og fjölbreytt úrval afþreyingar og tómstunda. Stórkostlegar strendur Guardamar eru aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Raðhús á einni hæð auk þakverandar, með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Öll húsin eru með opinni stofu, nútíma eldhúsi og borðstofu en úr alrými er gengið út á rúmgóða verönd og sundlaugarsvæði. Hjónaherbergi hefur stórt en-suite baðherbergi. Þvottaherbergi og geymsla eru undir stiganum sem liggur uppá stóra þakveröndina.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja eldhústæki, fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum