Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
REF 4724842
Nýbyggð einbýli á einstöku svæði við Doña Pepa, innan þéttbýliskjarnans Ciudad Quesada. Þetta íbúasvæði á miðri Costa Blanca Sur er í tíu mínútna akstursfjarlægð frá dásamlegu ströndunum í Guardamar, þar er að finna golfvöll, vatnagarð og ótrúlegt úrval veitingastaða, bara, verslana og tómstunda. Fyrir unnendur útiíþrótta er La Mata-þjóðgarðurinn í aðeins 5 mínútna fjarlægð, með ýmsum gönguleiðum og hjólreiðastígum í kringum vatnið. Hverfið er vel tengt vegakerfinu, hægt er að komast til Guardamar og Torrevieja á 15 mínútum og á 35 mínútu á alþjóðlega flugvöllinn í Alicante.
Einbýli í Íbísa-stíl, með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum, á einni hæð auk sólstofu, á 600 fm lóð. Dagrýmið er í opnu rými og samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu með stórum gluggum þaðan sem útgengt er í garðinn. Úti er að finna stóra palla, að hluta til yfirbyggða, fullkomnir til að njóta samvista við vini og vandamenn undir beru lofti, auk einkasundlaugar. Af svefnherbergjunum eru tvö með sér baðherbergjum og það stærsta er einnig með aðgang að svölum. Sólstofan sem er yfir 100 m2 er fullkominn staður til að njóta sólar og dásamlegs veðurfars á Costa Blanca. Eigninni fylgir tvö bílastæði.
Fullkominn staður fyrir þau sem leita að íbúð fyrir fríið eða til að búa í allt árið um kring.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum