Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 4731605
Glæsileg einbýlishús í vinsælu Ciudad Quesada, íbúðahverfi á milli Guardamar og Torrevieja. Aðeins stuttur akstur er til stórmarkaða, banka, apóteka, heilsugæslu og alþjóðlegs skóla. Svæðið býður upp á margs konar íþrótta- og tómstundastarf, eins og golf, tennis/padel og líkamsræktarstöðvar, sem og vatnagarð og gönguleiðir í La Mata friðlandinu. Sandstrendur Guardamar og La Mata eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Svæðið tengist vegakerfinu á afar þægilegan máta en AP7 og N332 vegirnir gera það auðvelt að aka til Orihuela á 15 mínútum, til Santa Pola á 30 mínútum og til alþjóðaflugvallarins í Alicante á 40 mínútum.
Nútímaleg húsin eru með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, byggð á lóðum sem eru um 420-570 m2, og eru á 3 hæðum auk sólstofu. Jarðhæðin er með opið eldhús, stofu og borðstofu ásamt herbergi og baðherbergi. Gólfsíðir gluggar opnast út á svalir úr opna rýminu yfir í garðinn og sundlaugarsvæðið. Á annarri hæð er hjónasvítan og annað svefnherbergi, bæði með sitt hvort baðherbergið. Kjallarinn er opið rými með svefnherbergi, baðherbergi og eldhúsaðstöðu, sem hægt væri að nýta sem séreiningu. Aukalega er hægt að fá útbúna líkamsræktaraðstöðu, bíósal, eða tómstundaaðstöðu í opna rými kjallarans. Innangengnir stigar tengja húsið saman, allt frá kjallara og upp úr.
Húsin eru búin loftræstingu, glæsilegum fataskápum, geymslu sem er aðgengileg frá garðinum og einkastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum