Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos
Þessi eign er ekki í boði
REF 4488921
Nútímalegt hús á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt þakverönd. Á aðalhæð er amerískt eldhús með opinni setustofu og borðstofu, með stórum gluggum sem opnast út á útisvæði. Á veröndinni aftan við húsið er 6x3m einkasundlaug og útieldhús. Veröndin að framan er tilvalin til að borða undir berum himni og hefur geymslu undir stiganum liggur uppá 60m2 þakveröndina. Öll svefnherbergin eru með fataskápum og hjónaherbergið er en-suite. Til að tryggja mikið næði er lóðin algjörlega lokuð og þakveröndin með ógagnsæu gleri ofan á veggjum.
Húsinu fylgir loftkæling með svæðaskiptum stillingum, Balay eldhústæki, sía fyrir drykkjarvatn, rafmagnsgluggahlerar, flugnanet í gluggum, þjófavörn, sólarorkupanelar, rafmagnsskyggni á báðum veröndum, pergóla á þakverönd, einkasundlaug með varmadælu og yfirbreiðslu og einkabílastæði á lóð með aðgangi um vélknúið hlið.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Los Montesinos
Los Montesinos er lítið þorp við Suður Costa Blanca, í um 10 mín. akstursfjarlægð frá Torrevieja.
Þetta er fullkomið þorp fyrir þá sem vilja setjast að, með allri nauðsynlegri þjónustu, umkringt ökrum og nálægt ströndinni. Skoðið fasteignaframboðið í Los Montesinos:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum