Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 211349
Nýr íbúðakjarni í Villamartín, þar sem boðið er uppá nútíma 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðir af mismunandi gerðum. Íbúðir á jarðhæð með garði, íbúðir á miðhæð með stórum svölum, þakíbúðir á tveimur hæðum með þakverönd og þakíbúðir á einni hæð með meira en 90 m2 þakverönd. Góður frágangur er á eignunum og þeim fylgir bílskúr og geymsla.
Sameiginlegt svæði með stórri sundlaug og rúmgóðir garðar til að njóta sólarinnar og loftslagsins við Miðjarðarhafið.
Villamartín er staðsett í Suður Costa Blanca og býður uppá mikið úrval tómstunda og þjónustu. Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í aðeins 5 mínútna fjarlægð, Villamartín Plaza með veitingastöðum og ýmsum þjónustuaðilum sem og golfvöllurinn sjálfur eru í aðeins 1 km fjarlægð. 10 mínútna akstur er að fallegum ströndum Orihuela Costa.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum