Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
REF 244112
Nýr kjarni einbýlishúsa í íbúðarhverfi Villamartin, með fallegu útsýni yfir saltvötnin í Torrevieja og stutt frá golfvellinum. Aðeins 4 km eru að ströndum Orihuela Costa. Aðeins 10 mínútur tekur að aka að Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni.
Í kjarnanum verða 21 einbýlishús, byggð á einni hæð, með þakverönd. Velja má um hús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum eða hús með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Allar eignirnar hafa stórt útisvæði, þar á meðal sundlaug og bílastæði. Byggja má kjallara með eða án aðgengis fyrir bifreið. See more...
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðabyggð við Orihuela Costa sem byggð var við samnefndan gólfvöll, Golfklúbbinn Villamartín. Völlurinn var byggður og hannaður af P. Puttman, og vígður árið 1972. Mikil gróðursæld hefur dafnað á þeim tæplega 50 árum sem liðið hafa frá opnun vallarins, sem gerir umhverfi hans einstaklega fagurt.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í náttúrlegu umhverfi, nálægt ströndinni sem er í 5 km. fjarlægð, er Villamartín án efa besti kosturinn á Costa Blanca. Hér eru fasteignirnar í Villamartín:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum