Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 2509423
Íbúðakjarni í hinu vinsæla íbúðarhverfi Villamartín við Orihuela Costa. Verslanakjarni og matvöruverslun eru í göngufæri við kjarnann. Á svæðinu eru þrír golfvellir; Villamartín, Las Ramblas og Campoamor. Frábærar strendur Orihuela Costa eru í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð og aðal verslunarmiðstöðin, Zenia Boulevard, er aðeins í 5 mínútna akstursfjarlægð. Hraðbrautin AP7 og N332 vegurinn tengja svæðið við helstu borgir og bæi.
Kjarninn snýr í suður og býður uppá íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum (eitt en-suite) en auk þess eru í boði tvær þakíbúðir með 3 svefnherbergjum, stórum veröndum og stórbrotnu útsýni yfir hafið. Allar íbúðirnar samanstanda af opinni stofu, borðstofu og eldhúsi. Stofan opnast út á rúmgóða verönd með útsýni yfir sameiginlegan garð og sundlaugarsvæðið. Sameiginlegt svæði er einnig með bílastæði.
Íbúðunum fylgir loftkæling/hitun, fataskápar og möguleiki á þvottahúsi á verönd. Mögulegt er að festa kaup á bílastæði og/eða geymslu í sameiginlegri bílageymslu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum