Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3046603
Nýr íbúðakjarni í Villamartín, Orihuela Costa. Nokkrum kílómetrum frá strönd og í mínútna fjarlægð frá golfvellinum og allri nauðsynlegri þjónustu. Í boði eru íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum í þremur mismunandi gerðum; jarðhæðir með stórum garðsvölum, íbúðir á miðhæðum og þakíbúðir með þakverönd. Nútímaleg hönnun og loftkæling/hitun og gólfhiti á baðherbergjum er innifalið í verði. Þakíbúðum fylgir nuddpottur, útisturta, útieldhús með vaski og grillaðstöðu á þaki ásamt tengi fyrir sjónvarp. Veröndin er að hluta til búin gervigrasi og að hluta flísum. Flestar eignir njóta fallegs útsýnis yfir svæðið og út á haf. Sameiginleg sundlaug er í kjarnanum, heitur pottur og bílastæði í kjallara ásamt geymslu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum