Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
REF 3817338
Ný íbúðakjarni á friðsælu en samt vel rótgrónu svæði í Villamatrín, en úrval daglegra nauðsynja er í göngufæri frá kjarnanum, svo sem verslanakjarnar, matvöruverslanir, barir og veitingastaðir. Strendur Orihuela Costa og verslanamiðstöðin Zenia Boulevard eru í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Fyrir útivistarfólk eru margar hjóla- og gönguleiðir á svæðinu, svo ekki sé minnst á fjóra golfvelli í innan við 5 km radíus. Nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, fáanlegar af mismunandi gerðum og sólaráttum. Velja má milli jarðhæðaríbúða með rúmgóðri verönd eða garði; miðhæða með svölum eða þakíbúða með þakverönd og sjávarútsýni. Allar íbúðirnar hafa opna stofu, borðstofu og eldhús en alrýmið opnast út á verönd með útsýni yfir sameign. Velja má um ýmislegt við frágang og eignunum fylgir foruppsetning fyrir loftkælingu, innbyggðir fataskápar og bílastæði. Þakíbúð fylgir útisturta og grill.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðabyggð við Orihuela Costa sem byggð var við samnefndan gólfvöll, Golfklúbbinn Villamartín. Völlurinn var byggður og hannaður af P. Puttman, og vígður árið 1972. Mikil gróðursæld hefur dafnað á þeim tæplega 50 árum sem liðið hafa frá opnun vallarins, sem gerir umhverfi hans einstaklega fagurt.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í náttúrlegu umhverfi, nálægt ströndinni sem er í 5 km. fjarlægð, er Villamartín án efa besti kosturinn á Costa Blanca. Hér eru fasteignirnar í Villamartín:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum