Glæsilegt einbýli með einkasundlaug í Punta Prima

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima

frá 97,565,000 kr
frá 650.000€

3

2

139.35 m2

310.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 3424418

Nýr kjarni einbýlishúsa á hinu vinsæla Punta Prima svæði, mitt á milli Torrevieja og Orihuela Costa. Þar má finna frábært úrval daglegrar þjónustu, eins og stórar matvöruverslanir, verslanir, bari og veitingastaði, auk þess sem Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð. Í innan við 2 km fjarlægð frá kjarnanum er svo Punta Prima ströndin og stutt er að sækja aðrar strendur í Torrevieja og Orihuela Costa. Fjórir golfvellir eru í innan við 10-15 mínútna akstursfjarlægð.

Húsin eru á tveimur hæðum, byggð á lóðum frá 310m2 og hafa 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Aðalhæðin samanstendur af opinni stofu, borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta og fallegan garð með einkasundlaug. Tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús má einnig finna á aðalhæð húsanna. Á efri hæð er síðan rúmgott hjónaherbergi, með fataherbergi, baðherbergi og glæsilegri 49m2 sólarverönd.

Velja má um ýmislegt gegn aukakostnaði, eins og jacuzzi á veröndina, snjallheimakerfi, pergólu fyrir bílastæðið eða hleðslustöð fyrir rafbíla svo eitthvað sé nefnt.

Eignunum fylgir loftkæling, gólfhiti er á baðherbergjum, þvottahús, fullgrágenginn garður með gervigrasi og staðbundnum plöntum, einkasundlaug og bílastæði á lóð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima

Rétt við mörk Torrevieja og Orihuela Costa er Punta Prima, fullkomin íbúðabyggð fyrir þá sem vilja kaupa fasteign á Costa Blanca.

Þar er að finna stórkostlegt úrval þjónustu, auk þess fylgir sá kostur að vera nálægt miðbæ Torrevieja en njóta um leið ró og kyrrðar á nokkuð þéttbyggðu svæði. Meginaðdráttarafl byggðarinnar í þessum hluta Orihuela Costa er gullin ströndin, strandgatan og ótrúlegt úrval tómstunda, skemmtana og fasteigna. Skoðið fasteignaúrvalið við ströndina í Punta Prima:

  • 49 km
  • 6 km
  • 25 km
  • 2 km
  • 2 km
  • 3 km

Nánari upplýsingar um Punta Prima

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.