Nútímalegt einbýlishús með 3 svefnherbergjum, kjallara og sundlaug í Hondon de las Nieves

Costa Blanca Suður, Vinalopó Medio, Hondón de las Nieves

frá 52,910,250 kr
frá 352.500€

3

3

228.24 m2

216.77 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5006633

Nýr einbýlishúsakjarni í Hondón de las Nieves, sem er þorp í Alicante héraði, nálægt borginni Elche. Þorpið er í dal sem er umkringt Crevillente fjöllunum, og er þekkt fyrir vínekrur, olívur- og möndlurækt sem og furuskóga. Mikil fjölbreytni er í vöruúrvali innan þorpsins, en í bænum Aspe sem er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð er að finna enn frekara úrval. Elche í um 25 mínútna akstursfjarlægð og býður upp á mikla þjónustu og afþreyingu, s.s. verslunarmiðstöðvar, íþróttaleikvanga, innlenda og alþjóðlega skóla, heilsugæslu, spítala og lestarstöð. Kjarninn er vel staðsettur og er hægt að aka að fallegu ströndunum í Arenales del Sol, Santa Pola, og La Marina á um 35 mínútum. Kjarninn er einnig vel tengdur vegakerfinu og er auðvelt að aka Costa Blanca strandlengjuna og fara til Alicante, Guardamar del Segura, og Torrevieja en flugvöllurinn í Alicante er í um 30 mínútna fjarlægð.

Þessi litli kjarni býður upp á einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á 2 hæðum auk kjallara. Jarðhæðin er með opnu skipulagi og er stofan, borðstofan og eldhúsið í einu rými. Stórir gluggar í stofunni opnast út á verönd sem er með pergólu, grillsvæði og garði með sundlaug. Á hæðinni er einnig hjónaherbergi með sér baðherbergi, þá er gestasalerni einnig á hæðinni. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi innaf hvoru þeirra, rúmgóð verönd með útsýni yfir sundlaugina og garðinn. Kjallarinn er innangengdur og er þar að finna 90m2 rými, geymslu og enska verönd. Þetta stóra rými getur verið notað sem bíósalur, vínkjallari, líkamsrækt eða hvað sem er.

Kjarninn hefur verið hannaður með sjálfbærni í huga, og með sólarsellum sem minnkar orkunotkun. Auk þess er loftræsting sem fylgir húsunum og loftkæling sem bæði hitar og kælir. Húsunum fylgja einnig fullbúnir fataskápar, grillsvæði á veröndinni, einkagarður og sundlaug, auk bílastæðis með tengi til að hlaða rafbíla. Aukalega er hægt að gera breytingar á húsunum og garðinum, ef vilji er fyrir því.

See more...

  • verönd
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vinalopó Medio, Hondón de las Nieves

Hondón de las Nieves er bær inni í landi í Alicante, í Medio Vinalopó héraði. Bærinn er umkringdur Crevillente fjöllunum, möndlu- og olífuræktunum, og  vínekrum.

Bærinn er með fallegt landslag og er með skemmtilegan bæjarbrag með stóru torgi þar sem mannlífið blómstrar. Á undanförnum árum hafa evrópubúar hvaðan af sest að í Hondón de las Nieves. Rólegt umhverfi með fasteigunum á góðu verði gera þennan bæ að frábærum valkosti til að láta drauminn um að búa á Spáni rætast.

  • 27 km
  • 33 km
  • 18 km
  • 26 km
  • 33 km
  • 26 km

Nánari upplýsingar um Hondón de las Nieves

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.