Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche
Þessi eign er ekki í boði
REF 2775295
Nýr kjarni raðhúsa í Alenda Golf, nokkrum mínútum frá miðbæ Elche og 15 mínútum frá Alicante. Tilvalinn staður fyrir þá sem kjósa rólegheit en að sama skapi nálægð við borgarlíf.
Boðið er upp á tvö raðhúsalíkön, á tveimur hæðum með þakverönd eða kjallara. Á jarðhæð er opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi ásamt salerni og búri. Á efri hæð eru 3 svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað þeirra innaf hjónaherberginu sem hefur aðgang að þakveröndinni. Öll húsin eru með garði með beinum aðgangi að sameiginlegu sundlaugarsvæði og opin bílastæði fylgja hverri eign.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche
Elche er önnur fjölmennasta borg Costa Blanca og sækir frægð sína til pálmatrjánna í Palmeral, sem eru á Heimsminjaskrá Unesco. Borgin nær frá þéttbýliskjarnanum sem er 15 km. inn í landi, að Miðjarðarhafsströndinni. Þar er einnig að finna Alþjóðaflugvöllinn í Alicante-Elche.
Í Elche er sjávarsíðan einir 12 km. og stór hluti hennar eða 9 km. eru strendur á milli sandhóla og furutrjáa, sem einkennandi eru fyrir Miðjarðarhafslandslagið. Til norðurs teygja úr sér sandhólarnir í Altet, alla leið til Arenales del Sol, ferðamannastaðar þar sem finna má ýmsa þjónustu. Til suðurs er að finna La Marina, þar sem einnig eru strendur og mikilvægir þéttbýliskjarnar. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Elche
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum