Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 1507253
Einbýlishús í Doña Pepa, Ciudad Quesada. Í göngufæri við stendur Guardamar og með alla þjónustu í nágrenninu. Ciudad Quesada er með vinsælustu íbúðahverfum við suður Costa Blanca og býður uppá eigin golfvöll, vatnagarð og ótal veitingastaði, bari, matvöruverslanir og tómstundir fyrir alla fjölskylduna.
Einstaklega fallegt einbýli með nýstárlegri hönnun, glæsileg blanda af nútíma stíl og dæmigerðum Miðjarðarhafsstíl. Húsið er á einni hæð auk 100 m2 þakverandar og hefur 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi, bjarta opna stofu, nútíma eldhús með tvöfaldri lofthæð og glæsilega verönd. Byggt á 520 m2 lóð með möguleika á að koma fyrir einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum