Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 2657133
Nýr kjarni glæsilegra einbýlishúsa í Rojales, rétt hjá hinu vinsæla svæði Ciudad Quesada. Frábært útsýni er yfir Guardamar og La Marquesa golfvöllinn. Í nágrenninu er úrval þjónustu og veitingastaðir en strendur Guardamar eru í 10 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru byggð á tveimur hæðum, á lóðum frá 400m2, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Rúmgóð og björt stofa með tvöfaldri lofthæð er í eignunum ásamt nútímalegu eldhúsi og borðstofu. Úr stofu er gengið útá stóra verönd og garð í Miðjarðarhafsstíl með einkasundlaug. Á jarðhæðinni eru einnig 2 stór svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni. Á stigapalli efri hæðar má koma fyrir auka setustofu, skrifstofu eða lestrarsvæði. Stórt hjónaherbergi með baði er enn fremur á hæðinni. Breyta má ókláruðum 106m2 kjallara eftir þörfum, fyrir aukakostnað.
Húsunum fylgir loftkæling/hitun, fataskápar, lýsing inni og úti, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum