Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 201357
Einbýlishús staðsett í Orihuela Costa, nálægt verslanasvæðum, 5 mínútur frá Villamartin golfvellinum og 7 km frá ströndinni í La Zenia.
Eignirnar eru byggðar á tveimur hæðum auk stórrar þakverandar. Þrjú stór svefnherbergi með baðherbergjum eru í húsinu, eitt á jarðhæð og tvö á efri hæð. Á jarðhæð er ennfremur gestasalerni og rúmgóð stofa með opnu eldhúsi og borðstofu. Öllum húsunum fylgir einkasundlaug, hiti er í gólfum á baðherbergjum, gluggahlerar eru sjálfvirkir og lagt er fyrir loftkælingu auk þess sem garður er afhentur fullkláraður með gervigrasi. Möguleiki er að byggja 92 m2 kjallara.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum