Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 4154365
Raðhúsakjarni í Pilar de la Horadada, Alicante, á landamærum suður Costa Blanca og Murcia-héraðs. Frábær staðsetning, í innan við 10 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum, þar sem allar daglegar nauðsynjar eru í boði, og í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Torre de la Horadada. Svæðið býður einnig upp á úrval íþróttamannvirkja, golfvalla og fallegt náttúrulandslag, tilvalið fyrir gönguferðir og hjólreiðar. Svæðið er vel tengt helstu borgum, Murcia og Alicante, en til Murcia má komast á 40 mínútum og til Alicante á einni klukkustund.
Kjarninn samanstendur af tveggja hæða raðhúsum, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, stórum veröndum og þakverönd. Á neðri hæð er opin setustofa, borðstofa og eldhús en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd út frá stofu og verönd út frá eldhúsi. Svefnherbergi og baðherbergi má einnig finna á jarðhæð, en 2 svefnherbergi eru á efri hæð. Gengið er upp á þakveröndina frá verönd á efri hæð, en þar er sumareldhús og útisturta, kjörið rými til að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins með fjölskyldu og vinum.
Allar eignir eru afhentar með gólfhita í stofu, eldhúsi og baðherbergjum, foruppsetningu fyrir loftkælingu og eldhústækjum.Kjarninn er lokaður og hefur líkamsræktaraðstöðu utandyra, sameiginlega sundlaug með garðsvæði fyrir sólstóla og upphitaðan nuddpott.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum