Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
Þessi eign er ekki í boði
REF 3060129
Nýr kjarni einbýlishúsa í San Miguel de Salinas, Costa Blanca, þar sem finna má fjóra bestu golfvelli svæðisins í nokkurra kílómetra radíus; Villamartin Golf, Las Ramblas Golf, Real Campoamor Golf og Las Colinas Golf. Kjarninn er staðsettur 500 m frá skólanum El Limonar International School í Villamartin og í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Fjölbreytt úrval þjónustu, svo sem matvöruverslanir, apótek, banka og fleira má finna skammt frá.
Í boði eru einbýli með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á tveimur hæðum auk þakverandar. Á jarðhæð er stór stofa, borðstofa, nútíma eldhús með þvottahúsi, svefnherbergi, baðherbergi og rúmgóðar verandir. Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi, bæði með ensuite baðherbergi með gólfhita. Öllum húsum fylgir einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Miguel de Salinas
San Miguel de Salinas er spænskur bær við suður Costa Blanca. Bærinn er byggður á hæð og nýtur útsýnis yfir Torrevieja saltvötnin og ótal sítrónu- og appelsínuakra í grenndinni.
San Miguel de Salinas er staðsettur nálægt nokkrum golfvöllum, svo sem Las Colinas og Villamartín og býður íbúum sínum uppá sjarma miðjarðarhafsþorpsins. Njóttu vikumarkaðarins, heimsæktu hellana í bænum og taktu þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Allt þetta, ásamt frábæru framboði þjónustu, gerir San Miguel de Salinas að einum af uppáhaldsáfangastöðum þeirra sem eru að leita að heimili í sólinni eða vilja koma í frí við Miðjarðarhafsströndina.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum