Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja
Þessi eign er ekki í boði
REF 3780579
Nýr íbúðakjarni, aðeins 100m frá ströndinni á öfundsverðum stað í Torrevieja. Í göngufæri frá allri daglegri þjónustu, eins og matvöruverslunum, verslunum, börum og veitingastöðum, sem og frábæru göngusvæði við ströndina. Tilvalin staðsetning fyrir frí eða varanlega búsetu, sérstaklega fyrir þá sem ekki vilja þurfa að vera á bíl.
Nútímalegar íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af mismunandi gerðum; jarðhæð með rúmgóðri verönd, miðhæð með verönd og þakíbúð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opinni setustofu, borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd. Sameiginlegt svæði, með sundlaug og garði, er á þaki hússins.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja
Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem horfir alltaf til sjávar, borg sem er stútfull af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllum sem vilja njóta lífsstílsins við Miðjarðarhafið. Borgin býr að einstöku loftslagi sem byggir á nálægð sjávar og staðsetningu hennar á Íberíuskaganum sem slíkum og þessi staðreynd býður okkur uppá meðalhita um 18ºC og meira en 300 sólskinsdaga á ári.
Það fyrsta sem vekur athygli í Torrevieja er umhverfið, þar sem tvö saltlón standa upp úr, annað bleikt en hitt grænt en vötnin eru hluti af þjóðgörðum Lagunas de La Mata og Torrevieja.
Þegar talað er um borgina er við hæfi að nefna tvennt; sjó og salt. Salt er hinn sanni uppruni þessa bæjar. Allt fram á miðja 20. öld var saltiðnaður aðalatvinnuvegur íbúa Torrevieja og í dag er Torrevieja einn helsti saltframleiðandi Spánar með um 600.000 tonna framleiðslu að meðaltali á ári.
Strandlengja Torrevieja er löng, eða samtals 14 km, þar sem finna má fjöldann allan af þéttbýlisströndum, víkum og skotum til að kæla sig í, en mörgum þeirra má hreinlega líkja við paradís.
Strendur Torrevieja eru vottaðar samkvæmt gæðastöðlum og umhverfisstjórnun. Torrevieja hefur þannig gæðastimpil sem hún má vera stolt af.
Mismunandi hefðbundnar hátíðir eru haldnar allt árið í borginni, svo sem páskagöngurnar eða sjógangan til heiðurs La Virgen del Carmen þann 16. júlí.
Maí hátíðin er líka mjög vinsæl meðal íbúa og gesta, með dæmigerðum básum, vínum, matargerð og tónlistarviðburðum. Torrevieja sameinar skemmtun og menningu fullkomlega.
Borgin tekur á móti þér opnum örmum og þú ert velkominn á fallegum stað fullum af lífi, menningu og skemmtun.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum