Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 3440578
Nútímalegt einbýlishús í Avileses, þorpi inni í landi við Costa Cálida. Á svæðinu má finna úrval daglegrar þjónustu, sem eykst þegar komið er í nærliggjandi bæi, San Javier og San Pedro del Pinatar. Húsið er staðsett nálægt nokkrum golfvöllum og í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mar Menor.
Eignin, sem er á einni hæð og byggð á 300m2 lóð, hefur 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi auk þakverandar. Aðalhæðin er opin og samanstendur af stofu, borðkrók og fullbúnu eldhúsi. Tvö svefnherbergjanna hafa en-suite baðherbergi. Stofan opnast út á rúmgóða veröndina og sundlaugarsvæðið. Þakgluggar eru í tveimur baðherbergjum og ganginum, sem veitir náttúrulegri birtu um rýmin og á rúmgóðri þakveröndinni má njóta víðáttumikils útsýnis yfir nærliggjandi svæði, þar má finna útieldhús.
Húsið er afhent tilbúið til uppsetningar á loftkælingu, því fylgja eldhústæki, gólfhiti á baðherbergjum, fataskápar, LED lýsing í eldhúsi, stofu, baðherbergjum og útveggjum, ásamt einkasundlaug með nuddpotti og bílastæði á lóð.Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum