Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Þessi eign er ekki í boði
REF 4393328
Nútímaleg einbýlishús á einni hæð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum auk þakverandar. Alrýmið er opið og rúmgott, með setustofu, borðstofu og amerísku eldhúsi. Lofthæðarháir gluggar opnast út á verönd með einkasundlaug. Stór þakverönd með sumareldhúsi er á húsunum, kjörinn staður til að njóta sólríkra daga og borða undir berum himni með fjölskyldu og vinum. Sumareldhúsið er með foruppsetningu fyrir ísskáp og þvottavél.
Einbýlishúsin eru byggð með gæðafrágangi og boðið er uppá nokkra valmöguleika. Eignunum fylgja eldhústæki, foruppsetning fyrir loftkælingu, fataskápar, inni- og útilýsing, sumareldhús á þakverönd, sundlaug með útisturtu og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum