Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
REF 5805479
Nútímaleg einbýlishús á Altaona golfstaðnum í Murcia. Á dvalarstaðnum er 18 holu golfvöllur, pro-búð, bar og veitingastaður, búningsklefar, auk stóra Parador verslunarsvæðisins, en það er hannað til að veita íbúum aukna þjónustu, eins og heilsusvæði, veitingastaði og verslanir. Einstakur dvalarstaður, sem er umhverfis El Valle-friðlandi UNESCO, með fallegum göngu- og fjallahjólaleiðum. Murcia, með mikið úrval af þjónustu og þægindum, er aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð, en ótrúlegar strendur Mar Menor og Miðjarðarhafið eru í aðeins 20-25 mínútna fjarlægð, hvort um sig. Dvalarstaðurinn er í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð frá Murcia flugvellinum og 45 mínútur frá flugvellinum í Alicante. Miðað við umhverfið, nálægð daglegra þæginda og fallegra stranda, tækifæri til útivistar og íþróttaiðkunar sem er í boði, eru þetta eignir þar sem auðvelt er að fullyrða að fólk fái mikið fyrir peningana. Jafnfram er þetta kjörið fjárfestingartækifæri.
Í kjarnanum eru einbýlishús á einni hæð með 2 eða 3 svefnherbergjum, fáanleg í mismunandi gerðum, byggð á lóðum á bilinu 438m2-709m2. Allar tegundir eru með opnu stofurými sem sameinar setustofu, borðstofu og eldhús í eitt rými. Stóru gluggarnir í setustofunni opnast út á verönd sem er yfirbyggð með pergólu og sundlaugarsvæði. Hjónaherbergið er með baðherbergi innaf og rúmgott fataherbergi er í flestum húsunum.
Nútímaleg innanhússhönnun húsanna felur í sér þægindi eins og gólfhita í setustofunni og á baðherbergjunum, loftræstikerfi, LED lýsingu í setustofunni, innbyggðum fataskápum og fullbúnum baðherbergjum. Hönnunin að utanverðu er hefðbundnari, með náttúrusteinsframhliðum og einkasundlaug, landslagshönnuðum garði með áveitukerfi og bílastæði á lóðinni.
Það fer eftir byggingarstigi, en gegn aukakostnaði er hægt að sérsníða fráganginn úr ýmsum valkostum og bæta við aukauppfærslum, eins og sólarrafhlöðum, o.s.frv.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Murcia Inland
Murcia svæðið, inni í landi, er tilvalið fyrir þá sem vilja hvílast eða stunda íþróttir og njóta fallegrar náttúru og góðrar matargerðar.
Svæðið er eitt stærsta framleiðslusvæði ávaxta, grænmetis og blóma í Evrópu, auk þess sem þekktar vínekrur eru í Jumilla, Bullas og Yecla með tilheyrandi vínbúgörðum og framleiðslu. Náttúran er falleg í Murcia og má þar nefna Sierra Espuña og Ricote dalinn en Murcia er ennfremur rík að listum og menningararfi. Í Murcia er framúrskarandi Miðjarðarhafsloftslag og fasteignamarkaðurinn býður uppá gæðaeignir á mjög góðu verði, aðallega einbýlishús.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum