Costa Cálida, Costa Murcia Sur, San Juan de los Terreros
Þessi eign er ekki í boði
REF 4014859
Nýr kjarni golfíbúða í fyrstu línu við golfvöllinn og með fallegu útsýni yfir Miðjarðarhafið. Kjarninn er í San Juan de los Terreros, bæ við strendur Almeríu, sem býður upp á allar daglegar nauðsynjar og er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá stórkostlegum náttúruströndum svæðisins. Svæðið er vel tengt um vegakerfi og aðeins 20 mínútur frá borginni Águilas, sem býður upp á frábært úrval af menningar- og tómstundastarfi, auk veitingastaða.
Kjarninn samanstendur af íbúðum með 1, 2 og 3 svefnherbergjum, af mismunandi gerðum og á mjög samkeppnishæfu verði! Allar íbúðirnar eru með stórum veröndum með golf- og sjávarútsýni og björtu og fallegu innra rými.
Þakíbúðir eru með þakverönd. Öllum íbúðum fylgja eldhústæki, loftkæling, bílskúr og geymsla.
Kjarninn er lokaður og með þremur sameiginlegum sundlaugarsvæðum fyrir fullorðna og börn.Costa Cálida, Costa Murcia Sur, San Juan de los Terreros
Strandbærinn San Juan de los Terreros tilheyrir Pulpí í Almeríu, sem liggur að Murcia-héraði. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur og tvær eldfjallaeyjur útaf ströndinni eða Isla de Terreros-Isla Negra Natural.
Á undanförnum árum hefur ferðamennska á svæðinu aukist, þökk sé ströndunum og uppbyggingu þjónustu í kring. Tilvalin staðsetning fyrir íþróttaáhugamenn, sérstaklega þá sem unna vatnaíþróttum. Milt Miðjarðarhafsloftslagið býður uppá að hægt sé að stunda þær allan ársins hring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum